29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í D-deild Alþingistíðinda. (3206)

89. mál, byggingarkostnaður íbúðarhúsnæðis

Frsm. meiri hl. Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um athugun á byggingarkostnaði íbúðarhúsnæðis á þskj. 101. N. sendi umrædda þáltill. ýmsum aðilum til athugunar, en varð ekki sammála um afgreiðslu. Meiri hl. n. leggur til, að henni verði vísað frá með rökstuddri dagskrá, svo sem nánar greinir á þskj. 549.