03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í D-deild Alþingistíðinda. (3669)
904. mál, héraðslæknar
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Spurt er, hverjar séu horfur á, að læknar fáist til starfa í Þórshafnar-, Kópaskers- og Breiðumýrarlæknishéruðum. Landlæknir hefur látið mér í té eftirfarandi til svars við þessari fsp.:
Örðugt er að segja nokkuð ákveðið um horfur á því, hvort eða hvenær læknar fáist til starfa í Þórshafnar-, Kópaskers- og Breiðumýrarlæknishéruðum. Eins og öllum er kunnugt, hefur um langt skeið gengið örðuglega að skipa ýmis hin fámennustu læknishéruð landsins. Hefur slíkt gengið mjög út yfir Raufarhafnar- og Kópaskershérað. Síðan Raufarhafnarhérað var stofnað árið 1958, hafa bæði héruðin örsjaldan verið skipuð samtímis. Vegalengdin milli Kópaskers og Raufarhafnar er talin 55 km, og er sú leið langoftast fær, einnig á vetrum. Íbúafjöldi Kópaskershéraðs er í árslok 1967 talinn 699 og Raufarhafnar 472 eða samtals 1171. Er það hvorki talið of mannmargt læknishérað fyrir einn lækni né sérstaklega víðlent. Örðug er hins vegar stofnun læknamiðstöðvar á þessu svæði, þar sem fleiri en einn læknir þjóni samtímis, þó að slíkt sé nú í athugun. Tel ég þess því ekki að vænta, að læknir fáist fyrst um sinn í Kópaskershérað eða ekki á meðan læknir situr á Raufarhöfn. Bæði Þórshafnar- og Breiðumýrarhérað eru stærri en Kópaskers- og Raufarhafnarhérað. Þórshafnarhérað er með 853 íbúa og Breiðumýrarhérað með 1352 íbúa í árslok 1967. Um Þórshafnarhérað gildir sama og um Kópaskers- og Raufarhafnarhérað, að örðugt er að koma þar á læknamiðstöð. Er því nú gegnt frá Vopnafjarðarhéraði, um 80 km leið, og er það oft örðugt, einkum á vetrum. Aftur á móti væri auðvelt að koma á læknamiðstöð á Húsavík fyrir Húsavíkur- og Breiðumýrarlæknishérað, aðeins 38 km eru frá Breiðumýri til Húsavíkur og auk þess er kominn nýr vegur frá Húsavík til Mývatnssveitar, eins og kunnugt er, svokallaður Kísilgúrvegur. Samkv. læknaskipunarlögunum frá 1965 kemur 50% staðaruppbót á laun héraðslækna í Kópaskers-, Raufarhafnar- og Þórshafnarhéruðum, en engin í Breiðumýrarhéraði.
Því miður hef ég ekki meira um þetta að segja, og ég skil mjög vel áhyggjur hv. fyrirspyrjanda í sambandi við læknisþjónustuna á þessum svæðum. En það er hér sem annars staðar við örðugar aðstæður að eiga. Frá sjónarmiði landlæknis, sem er sannast að segja boðinn og búinn og leggur sig allan fram til þess að fá lækna út í dreifbýlið og hefur góð sambönd við læknasamtökin, og samkv. umsögn hans eru horfurnar þær, að ekki er hægt að segja ákveðnar um þetta heldur en ég nú hef greint frá.