15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í D-deild Alþingistíðinda. (3915)

201. mál, nefndir

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ætlan mín var sú að vekja athygli á því, að þessi fsp. er ekki í samræmi við þingsköp. Því hefur ekki verið hnekkt. Hv. fyrirspyrjandi vill ekki hlíta mínum ráðleggingum að taka fsp. til baka, og ég mun þá, og stjórnin, fylgja ráðum hv. 1. þm. Norðurl. v., Ólafs Jóhannessonar, og hafa þann hátt á svörum við þessari fsp., sem hann lagði hér til síðast.