15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í D-deild Alþingistíðinda. (3916)

201. mál, nefndir

Forseti (BF):

Forseti vill leyfa sér að vekja athygli þingheims á því, að það ber að greiða atkv. án umr. um það, hvort fsp. skuli leyfðar. Vil ég mælast til þess við hv. þm., að þeir eyði ekki tíma þingsins í umr. um þetta mál miklu lengur.