02.02.1970
Neðri deild: 51. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í B-deild Alþingistíðinda. (416)

116. mál, verslunaratvinna

Frsm. 2. minni hl. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Varðandi frv. á þskj. 149 um breytingu á lögum um verzlunaratvinnu get ég látið nægja að vísa til nál. 2. minni hl. um mál nr. 115 á þskj. 148 og einnig til þeirrar framsöguræðu, sem ég flutti fyrir hönd 2. minni hl. í dag um það mál. 2. minni hl. flytur á þskj. 341 brtt. við 2. gr. þessa frv., og er hún sama efnis og sú brtt., sem við fluttum við hitt frv.