20.04.1970
Neðri deild: 78. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (929)
206. mál, kaup á sex skuttogurum
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed. og var afgr. þaðan nú fyrir helgina. Við umr. um þetta frv. spunnust nokkrar umr. um byggingu á öðrum stærðum togaraflotans, þá sérstaklega um skipin, sem nokkur byggðarlög hafa sýnt áhuga á, að yrðu smíðuð, þ.e.a.s. skip 500–600 rúmlesta. Um það mál er það að segja, að það mál er nú á lokastigi þeirrar rannsóknar, sem nauðsynlegt var talið, að fram færi á þeim gögnum, sem umræddir aðilar hafa látið ríkisstj. eða fiskveiðasjóði í té, og lýkur þeirri athugun um miðja þessa viku.
Frv. sjálft, sem hér liggur fyrir, er árangur af starfi n., sem skipuð var fyrir þremur árum, eða 6. apríl 1967, til að gera till. um kaup á nýjum skuttogurum. Eftir að togaranefndin hafði gert ítarlegar athuganir og rekstraráætlanir, gerði hún till. um smíði skuttogara, um 1000 brúttólestir að stærð eða 59 m á lengd. Hafa að undanförnu farið fram viðræður af hálfu rn. við þá aðila, sem áhuga hafa sýnt um kaup á slíkum togurum. Niðurstöður viðræðnanna liggja ekki fyrir. Því hefur ekki enn þá verið ákveðið neitt endanlega um framhald þessa máls. Ekki verður heldur vitað um kjör, sem skipin geta fengizt á. Lán og lánskjör frá hugsanlegum skipasmíðastöðvum munu ekki liggja fyrir, fyrr en útboðsfrestur er liðinn, en ríkisstj. hefur falið togaranefnd að bjóða skipin út á opnum alþjóðamarkaði.
Þau skip, sem hér er um að ræða, uppfylla sérstaklega þarfir íslenzks sjávarútvegs, sem verða uppfylltar eingöngu með minni gerðum skipa, og er þar að leita raka fyrir því, að farið er út á þá óvenjulegu braut að styrkja smíði þeirra sérstaklega með framlagi af ríkisfé. Eru þetta hliðstæðar ráðstafanir og aðrar togaraútgerðarþjóðir við Norður-Atlantshaf hafa að undanförnu gert. Þá er og gert ráð fyrir tiltekinni lánafyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins.
Ekki þarf að rekja efni einstakra gr. frv., heldur er nánar gerð grein fyrir efni þeirra í aths. við sjálft frv. Þó skal þess getið, að gert er ráð fyrir, að lán fáist með skipunum, sem nemi 80% af byggingarkostnaði þeirra. Af þeim 20%, sem eftir standa, er ætlað, að væntanlegir kaupendur greiði 7.5%, sveitarfélag það, sem skipið verði gert út frá, leggi fram 7.5% og loks, að 5% komi sem framlag frá ríkinu, en enn fremur leggi ríkið fram sem svarar 2.5% af byggingarkostnaðinum og verði því fé varið til útbúnaðar á skipin, þannig að heildarframlag frá ríkinu nemi þá sem svarar 7.5% af byggingarkostnaði. Gert er ráð fyrir, að framlag ríkisins verði endurgreitt, en þó ekki fyrr en öll lán hafa verið greidd, þá án vaxta. Einnig er gert ráð fyrir því, að byggingarlánið verði yfirtekið af ríkisábyrgðasjóði og endurlánað til allt að 18 ára. Þá er gengið út frá því, að kaupendur skipanna skuldbindi sig til þess að greiða ákveðinn hundraðshluta af brúttó aflaverðmæti þeirra til þess að standa undir greiðslu afborgana og vaxta af láninu. Um það verður að setja nánari reglur. Hafa verið samdir sérstakir skilmálar um kaup á þessum togurum og gerðar áætlanir um greiðslur afborgana og vaxta af þeim lánum.
Eins og hv. þdm. vita, þá hefur gætt allmikils ójafnvægis í endurnýjun togaraflotans, og vonandi verður sú endurnýjun, sem væntanlega mundi eiga sér stað eftir samþykkt þessa frv., upphaf þess, að togaraflotinn verði í framtíðinni endurnýjaður oftar og jafnar en verið hefur. Íslendingar þurfa að eiga þess kost á hverjum tíma að kynnast því fullkomnasta í þessu efni, og mun það verða stefna stjórnarinnar að stuðla að stöðugri og jafnari endurnýjun þessara framleiðslutækja í náinni framtíð. Frv. það, sem hér er lagt fram, hefur að geyma sérstakar ráðstafanir til eflingar íslenzkum sjávarútvegi, sem mun vonandi leiða til aukinnar hráefnisöflunar, betri nýtingar frystiiðnaðarins og áframhaldandi þátttöku Íslendinga í fiskveiðum á mikilvægum fiskimiðum, sem þeim er nauðsyn að tryggja sér aðgang að.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa um frv. þetta fleiri orð á þessu stigi málsins, en geri að till. minni, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.