02.04.1971
Neðri deild: 83. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
19. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég ætla ekki að segja nema örfá orð. Ég hefði auðvitað ástæðu til þess að svara spurningum almennt, sem komu fram í ræðum þessara hv. þm., sem hafa talað, síðan ég talaði síðast. En þar sem séð er, að ákveðnir þm. eru staðráðnir í því að beita málþófi og tími þingsins er orðinn það tæpur, þá höfum við flm. þessarar till. fallizt á það að taka till. aftur, því að við viljum ekki standa að því, að þetta frv. dagi uppi og fjöldi manna, sem sækir um ríkisborgararéttindi, fái þar af leiðandi ekki ríkisborgararétt á þessu ári.