06.04.1971
Neðri deild: 89. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1593 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

281. mál, almannatryggingar

Birgir Finnsson:

Herra forseti. Samkv. því frv., sem nú er komið á lokastig til afgreiðslu hér á hv. Alþ., munu útgjöld almannatryggingakerfisins aukast um 500 millj. kr. Það er engu síður vandi að afla þessa fjár en að úthluta því, og eins og fram kom í ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e. hér í gær, hefur heilbr.- og félmn. þessarar d. borizt erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, þar sem þessi hlið málsins er gerð að umtalsefni. Með sérstöku tilliti til þessa erindis Sambands ísl. sveitarfélaga segi ég nei.