05.04.1971
Neðri deild: 87. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. þetta eins og það kom frá Ed. og leggur til, að það verði samþ. Nál. hefur ekki verið útbýtt. Það er enn í prentun, en nm. skrifuðu undir með þeim fyrirvara að áskilja sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma, og einn hv. nm., hv. 4. þm. Austf., skrifaði undir nál. með fyrirvara. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta frv. sérstaklega við þessa umr. hér í hv. d. Hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir frv. við 1. umr. málsins og Ed. hefur þegar afgreitt það eins og það var lagt fram, og legg ég til fyrir hönd n., að það verði samþ.