10.02.1971
Neðri deild: 45. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

159. mál, fiskimálasjóður

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar eingöngu um heimild fyrir fiskimálasjóð til þess að hækka lán úr sjóðnum úr 400 þús. kr. í 600 þús. kr. hvert lán. Sjútvn. hv. d. hefur fjallað um frv. og mælir öll með því, að það verði samþ.