25.02.1971
Neðri deild: 53. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)

67. mál, happdrættislán fyrir Vegasjóð vegna brúargerða á Skeiðarársandi

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. n. fyrir einróma afgreiðslu á þessu máli og ég vænti þess, að það muni eiga greiðan gang í gegnum Alþ. úr þessu og ég vil aðeins undirstrika það, að því fyrr sem það er öllum ljóst að þetta verður að lögum, því betra. Því fyrr er hægt að fara að virkja þá miklu krafta, sem ég veit að eru fyrir hendi í þjóðfélaginu til þess að styðja að framgangi þessa verkefnis, sem stefnt er að að leysa með samþykkt þessa frv.