22.03.1971
Neðri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1806 í B-deild Alþingistíðinda. (1924)

69. mál, aðstoð Íslands við þróunarlöndin

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja smábrtt. við 4. gr. frv., en hún hljóðar þannig:

„Stjórn stofnunarinnar skal skipuð 5 mönnum, er sameinað Alþingi kýs, en utanrrh. skipar formann úr hópi þeirra.“

Það mun hafa fallið niður bæði í meðferð málsins í Ed. og sömuleiðis í n. í Nd. að bæta inn í gr., hvað stjórnarmenn skuli kjörnir til langs tíma, og því flyt ég hér brtt. á þskj. 593 svo hljóðandi: „Á eftir orðunum „Alþingi kýs“ bætist: hlutfallskosningu til fjögurra ára í senn.“