26.03.1971
Neðri deild: 70. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

292. mál, þingfararkaup alþingismanna

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls gerði háttv. 1. þm. Reykn., 1. flm. frv., grein fyrir undirbúningi þess og efnisatriðum. Fjhn. hefur haft málið til meðferðar, og leggur hún til, að frv. verði samþ. óbreytt.