26.03.1971
Neðri deild: 70. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1818 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)
292. mál, þingfararkaup alþingismanna
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég ætla ekki að deila við hv. þm. um starfstíma Alþ. né heldur um starfshætti Alþ. Um það væri hægt að halda langar og margar ræður, en ekki ástæða til slíkra hluta nú. Ég get þó ekki látið vera að leiðrétta hv. þm. og benda honum á það, að hugsi hann sér að túlka skerðingarákvæði 2. gr. þessa frv. sem hlutfallsmælingu á milli þingstarfs og annars starfs manns, sem á þingi situr, þá verður hann að sjálfsögðu að miða við skerðingu þess embættismanns, sem á þingi situr og daglega getur komið til starfa. Það er gert ráð fyrir því að skerða laun hans um 40% í stað þess, að hv. þm. miðar við embættismann, sem er fjarri embætti sínu nærri 2/3 hluta ársins, en lagt er til í frv. að skerða laun hans um 70%. Um launaákvæði frv. má svo eflaust deila, en ég held, að við séum allir sammála um það, að án ofrausnar eigi laun alþm. að vera með þeim hætti, að karlar og konur úr öllum stéttum þjóðfélagsins, hvaðan af landinu sem er, geti tekið sæti á Alþ. og þurfi ekki að vera fjárhagslega háð öðrum. Stefnir þetta frv. að því markmiði frekar en verið hefur. Mér er svo hins vegar ljóst, að það eru til menn og þeir kannske margir, sem eru reiðubúnir til að taka sæti á Alþ. án nokkurra launa, en ég held, að slíkt sé ekki þjóðfélaginu fyrir beztu. Ég vil svo með skírskotun til ræðu minnar hér við 1. umr. þessa máls — og með tilvísun til flutnings þessa máls þm. — af hálfu allra þingflokka eftir samkomulag, sem þar hefur náðst, mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.