18.03.1971
Neðri deild: 64. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2141 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

Hæstaréttardómur í handritamálinu

Forseti (BGr):

Það er óvenjulegt, að tíðindi sem þessi séu flutt svo fersk á þingfundi, og ég vænti, að ég megi mæla það fyrir munn allra hv. alþm., að þeir taki undir þau orð, sem hæstv. ráðherrar hafa látið falla um ánægju Íslendinga yfir endanlegri lausn þessa máls og yfir þeim mikla viðburði, sem gerzt hefur í menningar- og þjóðarsögu okkar.