10.02.1971
Neðri deild: 45. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2147 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BGr):

Borizt hefur eftirfarandi bréf: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Eysteinn Jónsson,

1. þm. Austf.“

Tómas Árnason hefur átt sæti á þessu þingi áður og býð ég hann velkominn til starfa.