22.02.1971
Sameinað þing: 26. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (2305)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 21. febr. 1971.

Matthías Bjarnason, 2. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég að læknisráði mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ásmundur B. Ólsen kaupmaður, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Matthías Á. Mathiesen,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ásmundur B. Ólsen kaupmaður hefur áður á þessu kjörtímabili tekið sæti á Alþingi sem varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi og fór þá fram rannsókn á kjörbréfi hans. Ég leyfi mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa á ný.