02.03.1971
Sameinað þing: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (2310)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 1. marz 1971. Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur hinn 26. febr. s.l. ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna embættisanna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að í forföllum 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Sigurgeir Kristjánsson forstjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jónas G. Rafnar, forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Einnig liggur hér fyrir svo hljóðandi bréf frá Helga Bergs:

„Reykjavík, 27. febr. 1971.

Hér með tilkynnist, að vegna annarra starfa get ég ekki tekið sæti á Alþingi nú á næstunni í forföllum Björns Fr. Björnssonar, 4. þm. Sunnl.

Virðingarfyllst,

Helgi Bergs.“

Sigurgeir Kristjánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi sem varamaður á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans. Hann tekur nú sæti á þinginu sem 4. þm. Sunnl. og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa. Á