08.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 8. marz 1971.

Páll Þorsteinsson, 2. þm. Austf., hefur hinn 26. febr. s.l. ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra starfa heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að í forföllum 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Kristján Ingólfsson kennari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Jónas G. Rafnar,

forseti Ed.

“Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Svo hljóðandi bréf liggur fyrir frá 1. varamanni Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómasi Árnasyni:

„Reykjavík, 5. marz 1971.

Hér með leyfi ég mér að tilkynna yður, að vegna anna mun ég ekki geta tekið sæti á Alþingi á næstunni í forföllum Páls Þorsteinssonar alþingismanns.

Virðingarfyllst,

Tómas Árnason.“

2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Kristján Ingólfsson kennari, hefur áður tekið sæti á Alþingi sem varaþm. og kjörbréf hans þá verið rannsakað. Þarf því ekki að fara fram rannsókn á því nú og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa.