15.03.1971
Neðri deild: 61. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (2313)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (MÁM):

Mér hefur borizt eftirfarandi bréf:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að í forföllum 1. varamanns taki 2. varamaður Y-listans í Reykjavík, Haraldur Henrýsson lögfræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Hannibal Valdimarsson,

9. þm. Reykv.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Haralds Henrýssonar lögfræðings hefur verið skoðað, en vitað er, að 1. varaþm. Hannibals Valdimarssonar er búsettur erlendis. Það þarf því ekki að skoða kjörbréf Haralds Henrýssonar og tekur hann sæti hér sem 9. þm. Reykv. og er boðinn velkominn.