18.12.1970
Efri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2159 í B-deild Alþingistíðinda. (2336)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forseti (JR):

Þar sem þetta er væntanlega síðasti fundur hv. þd. fyrir jólaleyfi, leyfi ég mér að óska hv. þdm. öllum og vandamönnum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar ferðar og heimkomu og vonast til þess að sjá þá hér alla við góða heilsu, þegar Alþ. kemur saman að nýju. Öllu starfsfólki Alþingis óska ég gleðilegra jóla, gæfu og gengis á komandi ári.