18.12.1970
Neðri deild: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2159 í B-deild Alþingistíðinda. (2339)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf við okkur þm. og góða og lipra fundarstjórn. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs og farsæls komandi árs. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessar óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum.