18.12.1970
Sameinað þing: 20. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2160 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 91. löggjafarþings, frá 19. des. 1970 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 25. jan. 1971.

Gjört í Reykjavík, 16. desember 1970.

Kristján Eldjárn.

Jóhann Hafstein.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 91. löggjafarþings, er frestað frá 19. des., og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 25. jan. 1971. Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins, svo og landslýð öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.