25.01.1971
Sameinað þing: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Hinn 11. janúar 1971 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf :

Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþ. skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 25. janúar 1971, kl. 14.00.

Gert í Reykjavík, 11. janúar 1971.

Kristján Eldjárn.

Jóhann Hafstein.“ Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki þingsins gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðin ár, um leið og ég býð þau velkomin til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.