07.04.1971
Efri deild: 97. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)

Starfslok deilda

Forseti (JR):

Þetta verður síðasti fundur hér í hv. Ed. núna á yfirstandandi kjörtímabili. Ég vil leyfa mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir alveg frábærlega gott samstarf undanfarandi 4 ár, og ég vil óska þeim og öllum venzlamönnum þeirra gæfu og gengis á komandi árum. Ég vil einnig þakka skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki Alþingis fyrir gott samstarf og alveg sérstaklega mikinn velvilja í minn garð á þeim tíma, sem ég hef stýrt fundum hér í hv. Ed. Ég vil svo óska öllum utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.