07.04.1971
Neðri deild: 91. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (2353)

Starfslok deilda

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf við okkur þdm. og góða og réttláta fundarstjórn. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs og góðs sumars og bið hv. alþm. að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]