08.03.1971
Neðri deild: 58. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2435)

144. mál, námslán og námsstyrkir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Í tilefni af þessu vildi ég aðeins benda hv. þm. á, að lögin, sem við erum að ræða um, heita lög um námslán og námsstyrki og sjóðurinn gerir hvort tveggja að veita námslán og námsstyrki, þannig að vel er hægt að koma ákvæðum um styrki til nemenda á framhaldsskólastigi inn í þetta kerfi.