27.10.1970
Efri deild: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (2550)

12. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson) :

Herra forseti. Frv. þetta er — eins og í fskj. þess segir flutt til staðfestingar brbl., sem út voru gefin 1. júní s.l. En svo sem einnig kemur fram í forsendum þessara brbl., voru þau flutt til þess að tryggja, svo sem kostur er á jafn sveiflugjörnum tekjulið og hér er um að ræða, að áhafnadeild Aflatryggingasjóðs gæti staðið undir sínum útgjöldum. Frv. þarf að mínu viti ekki frekari framsögu við, en ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og til hv. sjútvn., en það samtvinnast nokkuð því máli, sem hér er á dagskrá næst á eftir.