05.04.1971
Neðri deild: 88. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í C-deild Alþingistíðinda. (3217)

279. mál, sala Útskála í Gerðahreppi

Flm. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Þetta mál er flutt að beiðni oddvita Gerðahrepps um sölu á landi Útskála til hreppsins. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið hér, en legg til, að því verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. landbn.