17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í D-deild Alþingistíðinda. (3337)

27. mál, skoðanakannanir

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Till. þessi til þál. um athugun á framkvæmd skoðanakannana lá fyrir Alþ. í fyrravetur og var þá afgreidd frá allshn. með tilmælum um samþykkt, en sökum tímaskorts var hún þá ekki afgreidd. Nú hefur hún verið endurflutt og afgreidd á sama hátt frá allshn. Meiri hl. hennar leggur til, að till. verði samþ. Flm. till. gerði ítarlega grein fyrir því, hvað að baki till. lá, þegar hún var lögð fram, og sé ég ekki ástæðu til þess að ræða málið frekar, hygg, að öllum þingheimi sé innihald till. full ljóst og sú hugsun, sem að baki þessu liggur. En sem sagt, eins og ég gat um áðan, leggur allshn. til, að till. verði samþykkt.