02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (3457)

45. mál, skelfisk- og rækjuveiðar á Breiðafirði

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Allshn: hefur haft þessa till. um rannsókn og skipulag skelfisk- og rækjuveiða á Breiðafirði til athugunar og leitað um það umsagnar hjá Hafrannsóknastofnun og Fiskifélagi Íslands. Að fengnum þessum umsögnum varð n. sammála um að leggja til, að þessi till. verði samþ. Hins vegar tók n. ekki sem slík afstöðu til þeirrar viðaukatillögu, sem hv. 1. þm. Vestf. flutti, þegar þetta mál var til umr. hér í vetur.