02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (3578)

194. mál, ráðstafanir vegna skorts á hjúkrunarfólki

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu á þessari till. Ég er alveg samþykkur þeirri breytingu, sem n. hefur gert á till. Hún er eðlileg miðað við það, hve samþykktin er seint gerð á þinginu. Ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka þau rök, sem lágu til flutnings þessarar þáltill., þar sem hv. allshn. hefur þegar á þau fallizt.