09.02.1971
Sameinað þing: 25. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (3610)
47. mál, menntaskólar í Reykjaneskjördæmi
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mig langar með örfáum orðum til þess að lýsa samþykki mínu við því, sem segir í grg. þessarar till., en þar segir, að af þeim tölum, sem í grg. eru birtar, sýnist tímabært, að næsti menntaskóli verði stofnsettur í Reykjaneskjördæmi, og kemur Hafnarfjörður þá til athugunar af fjölmörgum ástæðum. Það hefur reyndar lengi verið augljóst mál, að sá tími mundi koma, að menntaskóli yrði staðsettur í Reykjaneskjördæmi og þá einkum og sér í lagi í Hafnarfirði. En utan Reykjavíkur eru sem kunnugt er starfandi menntaskólar á Akureyri og Laugarvatni, sem lengi hafa starfað, og nýstofnaður menntaskóli á Ísafirði. Auk þess hefur verið afráðið að stofna menntaskóla á Austfjörðum, og hefur þegar nokkurt fé verið veitt til hans. Nú alveg nýlega hefur menntmrn. ákveðið staðsetningu þessa skóla á Egilsstöðum, og er það í samræmi við það, sem ég tel vera yfirgnæfandi vilja Austfirðinga varðandi staðarval menntaskóla í þeim landsfjórðungi.
Varðandi ummæli hv. 1. flm. þessarar till. um ósk af hálfu forráðamanna Flensborgarskóla um að fá á næsta hausti að hefja menntaskólakennslu er það að segja, að forustumenn bæjarfélagsins og skólans hafa rætt við mig um það mál, og hef ég lýst því yfir við þá, að það leyfi skuli fúslega veitt, ef fullnægt er þeim almennu skilyrðum, sem rn. hefur sett fyrir slíkum leyfum. En nokkuð á annan áratug hefur gagnfræðaskólinn á Ísafirði starfrækt 1. bekk menntaskóla með miklum ágætum. Nýlega barst hliðstæð ósk frá gagnfræðaskólanum á Akranesi, og var hún veitt.
Ég endurtek það hér, að það hefur þegar borizt ósk frá forráðamönnum Flensborgarskólans í Hafnarfirði, og hefur henni verið jákvætt tekið, þó að formleg bréf muni ekki hafa gengið um það mál enn þá, og sama gildir um aðra hliðstæða gagnfræðaskóla eða hliðstæða framhaldsskóla, sem bera fram rökstuddar óskir um það að starfrækja 3. bekk eða 1. bekk menntaskóla, hafa til þess húsnæði, hafa til þess kennslukrafta og hafa til þess nægilega marga væntanlega nemendur, en þar hefur verið miðað við 15 nemendur í bekk sem lágmark, þá mun menntmrn. taka jákvætt á slíkum málaleitunum, enda hefur það tvímælalausa heimild til þess að gera það.