06.04.1971
Sameinað þing: 42. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (3680)

294. mál, landhelgismál

Forseti (BF):

Ég vil láta þess getið, áður en umr. lýkur, að hæstv. forsrh. hefur afhent mér skriflega till. til rökstuddrar dagskrár varðandi dagskrármálið. Till. hljóðar þannig:

„Þar sem Alþ. hefur á þessum fundi samþ. þáltill. um réttindi Íslendinga á hafinu umhverfis landið, sem mótar stefnuna í landhelgismálinu, telur Alþ., að ekki sé þörf á að samþykkja þessa till., og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“