18.12.1970
Sameinað þing: 19. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (389)

1. mál, fjárlög 1971

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég er samþykkur því, að læknamiðstöð verði stofnuð á Patreksfirði, en með tilliti til þess, að ekkert formlegt erindi hefur borizt til heilbrigðisstjórnarinnar og fjvn. um þessa læknamiðstöð, og ekki er vitað, hvort miðstöðin á að ná til eins eða tveggja læknishéraða, þá sé ég ekki, að hægt sé að veita framlag til framkvæmda, sem ekki hefur verið sótt um og þar af leiðandi engin athugun farið fram hjá þeim aðilum, sem um málið eiga að fjalla lögum samkv., og segi ég því nei.