10.11.1970
Sameinað þing: 9. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (4224)

321. mál, sjónvarpsmóttaka í Ólafsvík, Rifi, Hellisandi og nágrenni

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin, þó að ég sé ekki alls kostar ánægður með þau, þar sem þau gáfu ekki nein fyrirheit raunverulega um framkvæmd í þessu máli. Ég vil leggja áherzlu á það við hæstv. ráðh., að hann beiti áhrifum sínum í þá átt, að framkvæmdin geti orðið og það fyrr en seinna, því að hér er um mikið vandræðaástand að ræða, eins og ég lauslega drap á hér áðan.