08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í D-deild Alþingistíðinda. (4344)
338. mál, vaxtakjör Seðlabankans
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það er á misskilningi byggt, að hærri vextir séu á víxlum með veði í útflutningsvörum landbúnaðarins en á öðrum útflutningsvíxlum. Vextir eru þeir sömu, þótt framkvæmd sé nokkuð frábrugðin af tæknilegum ástæðum. Vextir af endurkaupanlegum afurðalánum með veði í útflutningsafurðum eru nú 6%, en Seðlabankinn endurkaupir slíka víxla af viðskiptabönkunum miðað við 51/4% vesti, þannig að þóknun viðskiptabanka er 3/4%. Vextir af afurðavíxlum með veði í vörum til sölu innanlands eru 1½% hærri, 7½% og 63/4%. Í birgðaskýrslum, sem lagðar eru fram vegna afurðalána með veði í landbúnaðarvörum, hefur ekki verið hægt að greina í sundur vörur til sölu innanlands og vörur til útflutnings. Við lánveitingu hefur Seðlabankinn því tekið hærri vexti af öllum afurðalánum landbúnaðarins, enda fer meginhluti þeirra á innlendan markað. Strax og framvísað er grg. um útflutning og gjaldeyrisskil veðsettra landbúnaðarafurða, hefur bankinn endurgreitt viðskiptabönkunum framangreindan 1½% vaxtamismun, en þeir síðan gert upp við viðkomandi lántakendur.