02.02.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í D-deild Alþingistíðinda. (4431)

330. mál, tannviðgerðir skólabarna

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin. Ég hef ekki kynnt mér þá reglugerð, sem nýlega hefur verið gefin út um þetta efni, en vænti sem sagt, að sá ágreiningur, sem uppi hefur verið um þetta atriði, verði nú úr sögunni og ríkið taki hér eftir, eins og áður var, þátt í þessum kostnaði, eins og ábyggilega var til ætlazt með skólakostnaðarlögunum.