02.03.1971
Sameinað þing: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í D-deild Alþingistíðinda. (4542)

214. mál, Umferðarráð

Dómsmrh. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. hafi e. t. v. misskilið það, sem ég áðan sagði, því að ég tel, að það verði ekki hjá því komizt, að umferðarráð fái aukið fé til ráðstöfunar. En á þessu stigi treysti ég mér ekki til þess að gefa beint eða ákveðið svar um það, hve háa fjárhæð yrði þar um að ræða.