09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í D-deild Alþingistíðinda. (4557)

353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 371 að beina fsp. til hæstv. samgrh. um flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu. Fsp. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Hvenær má vænta ákvörðunar flugmálayfirvalda um, hvort byggja eigi nýjan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu, og hvar er sennilegast, að hann yrði gerður, ef til kæmi?“

Fsp. er ljós, og vænti ég þess, að hæstv. ráðh. geti gefið við henni glögg svör.