17.03.1971
Efri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (702)
155. mál, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til laga um Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, 155. mál Nd., hefur verið til athugunar í iðnn. Á þskj. 506 skilar n. samhljóða jákvæðu áliti um frv. og mælir með samþykkt þess. Sama var einnig raunin í Nd. Frv. þetta er flutt af hæstv. ríkisstj., en samið af n. 8 manna undir forustu ráðuneytisstjóra iðnrn., Árna Snævarr. Árið 1968 ákvað stjórn Félags ísl. iðnrekenda að stofna til skrifstofu innan vébanda félagsins til fyrirgreiðslu fyrir félagsmenn, sem hyggja á útflutning iðnaðarvarnings í kjölfar EFTA-aðildar. Af ríkisins hálfu hefur nokkur styrkur verið veittur til þessarar starfsemi á árinu 1969, Í millj. á fjárlögum, en s. l. ár 3 millj. Samkvæmt þessu lagafrv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að stofnað verði til sjálfstæðrar stofnunar, útflutningsmiðstöðvar, með þeim aðilum, er hefðu áhuga fyrir áframhaldandi starfi til eflingar útflutningi íslenzks iðnaðarvarnings, þ. e. Félagi ísl. iðnrekenda, Landssambandi iðnaðarmanna, Sambandi ísl. samvinnufélaga, iðnaðardeild, auk opinberra aðila, þ. e. viðskipta- og iðnaðarráðuneytisins fyrir hönd íslenzka ríkisins. Gengið er út frá, að Félag ísl. iðnrekenda leggi niður sína útflutningsskrifstofu, en hún gangi inn í þessa nýju stofnun með reynslu þá, sem fengizt hefur til þessa.
Samkv. 3. gr. frv. er hlutverk Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins að kynna íslenzkan iðnvarning á erlendum vettvangi, að framkvæma markaðsathuganir erlendis fyrir iðnfyrirtæki á Íslandi, að leiðbeina iðnfyrirtækjum um útflutning, að skipuleggja sameiginlega útflutningsstarfsemi iðnfyrirtækja og að annast milligöngu um sölu á iðnaðarvörum erlendis.
4. gr. frv. kveður á um stjórn stofnunarinnar, sem skipuð skal sex mönnum, völdum til 4 ára, tveim tilnefndum af Félagi ísl. iðnrekenda, en einum af hverjum þessara aðila: Landssambandi iðnaðarmanna, Sambandi ísl. samvinnufélaga, viðskrh. og iðnrh. Samkvæmt sömu grein er gert ráð fyrir, að iðnrh. skipi formann og varaformann úr hópi Félags ísl. iðnrekenda. Þetta var nokkuð rætt í iðnn., en að athuguðu máli þótti þessi háttur á formanns- og varaformannskjöri ekki óeðlilegur með tilliti til þess, að þessi samtök ákveða að leggja alla sína útflutningsstarfsemi undir þessa stofnun. Landssamband iðnaðarmanna hefur hins vegar minni hagsmuna að gæta vegna meðlima sinna, hvað útflutning snertir, og gert er ráð fyrir, að Samband ísl. samvinnufélaga, iðnaðardeild, haldi áfram því starfi, sem þar hefur verið unnið til markaðskönnunar og sölu á íslenzkum iðnaðarvarningi á erlendum mörkuðum. Hins vegar eru þessir aðilar einnig með í þessu samstarfi.
Samkv. 5. gr. er gengið út frá því, að þessari starfsemi sé haldið uppi með fjárveitingu frá ríkissjóði og framlagi þeirra, sem að útflutningsmiðstöðinni standa. Einnig er gert ráð fyrir, að þeir aðilar, sem notfæra sér starfsemi stofnunarinnar, greiði þóknun fyrir störfin. Því ber að fagna, hversu góð samstaða hefur náðst um þetta mikilsverða mál, og væntir iðnn., að það fái góðar undirtektir í þessari hæstv. þd., svo að það verði að lögum á yfirstandandi þingi.