25.02.1971
Neðri deild: 53. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (710)

38. mál, alþjóðasamningur um stjórnmálasamband

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Þetta frv. til laga, sem er 38. mál Alþ., hefur legið fyrir allshn. deildarinnar alllengi og n. leitaði umsagnar utanrmn. um þetta frv., þar sem það er utanríkismál, og utanrmn. mælir eindregið með því, að það verði lögfest eins og það er. Í samræmi við það var það niðurstaða allshn. að leggja til við hv. d., að frv. þetta yrði samþ. óbreytt.