17.02.1971
Efri deild: 49. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (741)

183. mál, Vatnsveita Vestmannaeyja

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Þar sem svo illa vill til, að frsm. fjhn. í þessu máli er fjarstaddur, vildi ég aðeins segja það á vegum n., að hún hefur haft mál það, sem hér liggur fyrir, heimild til handa ríkisstj. til þess að ábyrgjast lán vegna Vatnsveitu Vestmannaeyja, til meðferðar, og eins og nál. á þskj. 362 ber með sér, mælir n. einróma með samþykkt þess.