12.11.1970
Neðri deild: 17. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

101. mál, atvinnuöryggi

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svarið. Ég vænti þess, að hv. þm. hafi tekið eftir, hvernig það hljóðaði. Hann segist ekki vita þetta. Samt veit hæstv. ríkisstj., hvernig verðlagið á að verða 1. des. Þeir vita um kaupið, það á að verða það sama og 1. sept., en þeir vita ekki kaupmáttinn. M. ö. o. liggur þetta þá fyrir. Það er ekkert svar við því, hvort kaupmátturinn verður sá sami 1. des. og 1. sept.