30.03.1971
Neðri deild: 77. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (969)

231. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft mál þetta til athugunar. Það hafði áður verið flutt frv. um breytingar á tollskrárlögum í sambandi við bifreiðar. Frv. þetta hefur verið samþ. í Ed. óbreytt, eins og það var flutt af hæstv. fjmrh. Hins vegar flytja flm. þessa frv., sem ég gat um áðan, brtt. við þetta frv. við þessa umr., þannig að afgreiðsla á því máli má segja að verði um leið og þessari umr. lýkur. N. hefur mælt með frv. Hins vegar áskilja einstakir nm. sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., en meiri hl. n. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.