27.04.1972
Neðri deild: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1189)

9. mál, sameining Borgarfjarðarhrepps og Loðmundarfjarðarhrepps

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft þetta mál alllengi, en hefur samþ. að mæla með samþykkt þess óbreytts að öðru leyti en því, að í 4. gr. komi 1973 í staðinn fyrir 1972, þ.e. að lög þessi öðlist gildi 1973.