15.05.1972
Neðri deild: 79. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)

209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins

Frsm. (Sigurður Magnússon):

Herra forseti. Iðnn. Nd. hefur fjallað um þetta frv. og athugað umsagnir, sem komið hafa frá Ed., og leggur til, að frv. verði samþ. í þeirri mynd, sem það kemur þaðan. Tveir nm., Gunnar Thoroddsen og Lárus Jónsson, áskildu sér rétt til þess að flytja brtt. og hafa gert það á sérstöku þskj. og munu vafalaust gera grein fyrir þeim.