17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)
259. mál, jöfnun á námskostnaði
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft til athugunar frv. til l. um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði. Í þessu frv. eru ýmis stórmerk nýmæli. Í fyrsta lagi er ákvæðið um að bæta stórlega aðstöðu nemenda, sem sækja skóla utan af landsbyggðinni, og í öðru lagi ákvæði, sem til þess eru fallin að rétta hjálparhönd þeim nemendum, sem eiga efnalitla foreldra eða erfiða aðstöðu að öðru leyti. Hér er tvímælalaust um að ræða mikilvægt spor í þá átt að auka jafnrétti til menntunar. Það er rétt að minna á í þessu sambandi, að áður hefur Alþ. afgr. frv., sem gengur í sömu átt, en þar á ég við, að nemendum Vélskólans og Stýrimannaskólans hefur verið veitt aðild að Lánasjóði ísl. námsmanna.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál af hálfu menntmn. Það er samdóma álit n., að hér sé um mjög mikilvægt framfaraspor að ræða, og hún mælir eindregið með því, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Nd.