17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)
217. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur athugað frv. það, sem hér liggur fyrir. Við meðferð málsins í Nd. var leitað umsagnar hjá stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og einnig Tryggingastofnunar ríkisins og einnig átti n. viðræður við tryggingafræðing.
Efni frv. er nánast það að tryggja starfsmönnum samtaka sveitarfélaga aðild að lífeyrissjóðinum, en nokkur vafi þótti leika á, hvort heimilt væri lögum samkvæmt að taka slíka starfsmenn í tölu sjóðfélaga, þar sem samtök þessi eru ekki lögbundin. Enn fremur er lagt til, að heimilt sé að taka í tölu sjóðfélaga starfsfólk sparisjóða, starfsfólk samnorrænna stofnana og starfsfólk uppeldis- og heilbrigðisstofnana, sem reknar eru af sjálfstæðum styrktar- eða líknarfélögum.
Fjhn. d. hefur orðið sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþ. eins og það hér liggur fyrir.