10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

249. mál, Bjargráðasjóður

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um Bjargráðasjóð og liggur fyrir nál. á þskj. 727. N. mælir einróma með samþykkt frv. Við 1. umr. gerði hæstv. félmrh. ítarlega grein fyrir frv. og þeim breyt., sem í því felast frá gildandi lögum, og sé ég ekki ástæðu til að bæta þar neinu við. Ég vil geta þess, að stjórn Bjargráðasjóðs er samþykk þessu frv. og einnig stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, en umsögn þess lá ekki fyrir, þegar málið var afgr. úr n.